Skilmálar

Fyrirtækið

Nafn ADORA ehf.
Kennitala 670217-0190
VSK númer 127449
Sími 555-0908
Netfang adora@adora.is
Heimilisfang Efstaland 26, 108 Reykjavík

Almennt

ADORA áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Öll verð á vefnum eru birt með fyrirvara um innsláttarvillu.

Greiðslur

ADORA tekur við greiðslum í gegnum heimasíðu með Mastercard, Maestro, VISA og VISA Electron.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar frá okkur næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Adora ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Adora til viðkomandi viðskiptavinar er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Hægt er að sækja vörur í Adora Grímsbæ eða fá vörur sendar með Íslandspósti.

Fyrir heimsendingar yfir 5.000 kr. er sendingarkostaður innifalinn. Fyrir minni pantanir bætist við sendingargjald 990 kr. Viðskiptavinur fær staðfestingu í tölvupósti þegar hann hefur lagt inn pöntun og gengið frá greiðslu.

Með fyrirvara um prentvillur og áskiljum við okkur rétt til að hætta við sölu á vöru hafi rangt verð verið birt

Að skipta eða skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Governing law / Jurisdiction

These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.